Hægt og bítandi erum við að færa okkur frá bílaborginni í skipulagi höfuðborgarsvæðisins. Kópavogur blés til samkeppni um nýtt skipulag við Smáralind og Þorsteinn Helgason arkitekt hjá Ask arkitektum ásamt fleirum á stofunni hrepptu fyrstu verðlaun og við heilsum uppá Þorstein í þættinum og fræðumst nánar um vinningstillöguna. Hér í stúdíói sitja Helga Hauksdóttir formaður skipulagsráðs Kópavogs og Hrafnkell Á. Proppé skipulagsfræðingur hjá Skipulagsstofnun.
↧