Efni þáttarins í dag fjallar um nýtt hverfi í Garðabæ, við gamla FG, þarna er búið að rífa tvær verksmiðjur, Héðinn og Frigg og búið að byggja nokkrar blokkir. Hér erum við að tala um lágreista byggð, og því hafa íbúar meira aðgengi að sól. Hagkvæm uppbygging, enginn bílakjallari og engar lyftur enda eru húsin aðeins þrjár hæðir. Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri Garðabæjar og Örn V. Kjartansson framkvæmdastjóri Framkvæmdafélagsins Eskiáss hf. sitja í stúdíói en við hefjum hins vegar leikinn hjá Sigurði Einarssyni og Sveini Bjarka Þórarinssyni arkitektum hjá Batteríinu, en þeir eru hönnuðir Eskiáss í Garðabæ, sem er hverfið sem við skoðum í dag.
↧